Fara í innihald

Buskerud

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Buskerud
Biskupsruð
Fáni Buskerud
Skjaldarmerki Buskerud
Staðsetning í Noregi
Staðsetning í Noregi
Hnit: 61°N 10°A / 61°N 10°A / 61; 10
Land Noregur
LandshlutiAustur-Noregur
HöfuðstaðurDrammen
Flatarmál
 • Samtals14.694 km2
Mannfjöldi
 (2026)[1]
 • Samtals272.981
 • Þéttleiki19/km2
TímabeltiUTC+01:00 (CET)
 • SumartímiUTC+02:00 (CEST)
ISO 3166 kóðiNO-33
Vefsíðawww.bfk.no Breyta á Wikidata

Buskerud eða Biskupsruð er fylki í Noregi. Nágrannafylki þess eru Ósló, Akurshús, Þelamörk, Vestfold, Vesturland og Innlandet. Heildarflatarmál fylkisins er 14.694 km2 og íbúar voru 272.981 árið 2026.[1] Fylkið er í landshlutanum Austur-Noregi.

Náttúrufar

[breyta | breyta frumkóða]

Fylkið nær frá Hurum í Óslóarfirði inn til Hallingdals og Harðangursheiðar. Inn til fjalla eru mörg dalverpi og fjallgarðar en austar og neðar í fylkinu er láglendara og skiptast á lágir, grónir ásar og dalir. Fylkið er allt skógi vaxið, upp að hæðarmörkum skóga í fjallendum. Þar tekur við heiðagróður.

Lengsta á Buskerud er Numedalslågen, en hún hefur upptök sín á Hörðalandi og rennur í Óslóarfjörð í Vestfold. Stærstu stöðuvötnin eru Tyrifjorden og Krøderen, en það fyrrnefnda er fimmta stærsta vatn Noregs.

Helstu atvinnuvegir í fylkinu eru landbúnaður, skógarhögg og alls kyns iðnaður auk þess sem þjónusta er vaxandi atvinnugrein. Stærsta borg og jafnframt aðsetur stjórnsýslu fylkisins er Drammen.

Skjaldarmerki

[breyta | breyta frumkóða]

Skjaldarmerki Buskerud er blár björn á silfurgráum bakgrunni. Ástæðan er sú að fram á 8. áratug síðustu aldar voru margir bjarnarstofnar í fylkinu. Blái liturinn á að endurspegla kobaltbláa litinn sem framleiddur var í Modum en grái liturinn á að endurspegla silfurnámurnar í Kongsberg.

Sveitarfélög

[breyta | breyta frumkóða]

Innan Buskerud er 21 sveitarfélag. Þau eru eftirfarandi:

  1. Drammen
  2. Flesberg
  3. Flå
  4. Gol
  5. Hemsedal
  6. Hol
  7. Hole
  8. Hurum
  9. Kongsberg
  10. Krødsherad
  11. Lier
  12. Modum
  13. Nedre Eiker
  14. Nes
  15. Nore og Uvdal
  16. Ringerike
  17. Rollag
  18. Røyken
  19. Sigdal
  20. Øvre Eiker
  21. Ål

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 3 „Population and area, by region, contents and year“. Statistics Norway. Sótt 7 október 2026.